Allar færslur

  • Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar 2025

    Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar 2025

    Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar verður haldinn á Slippbarnum miðvikudagskvöldið 10. september kl. 20. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og umræður um hverfið.

  • Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar

    Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar

    Stjórn fundaði í síðustu viku og lagði drög að dagskrá og áhersluatriðum komandi starfsárs. Stefnt er að því að halda mánaðarlega stjórnarfundi, á föstudögum tveimur vikum fyrir íbúaráðsfund. Áhugi er á því að fylgja eftir sögugöngunni sem var fyrir aðalfundinn um daginn og móta áfram hugmyndir fyrir almenningsrýmin í hverfinu. Gott væri þá að fá aftur innlegg frá gesti sem…

  • Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 48

    Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 48

    Tilnefning foreldrafélaga í íbúaráði Vesturbæjar Tímabilið 2022-24 sátu þær Magnea Guðrún Gunnarsdóttir og Anna Lísa Björnsdóttir sem fulltrúar foreldrafélaga í íbúaráði Vesturbæjar. Við þeim taka Bjarni Magnússon úr foreldrafélagi Melaskóla og Arnar Þór Snorrason úr foreldrafélagi Vesturbæjarskóla. Kynning á deiliskipulagsbreytingu tengdri nærþjónustukjarna í Skerjafirði Á síðasta fundi var kynnt deiliskipulagsbreyting sem felur í sér að nærþjónustukjarninn í Skerjafirði verði endurskipulagður…

  • Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar

    Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar

    Aðalfundur haldinn 11. September 2024 kl. 19 á Kaffihúsi Vesturbæjar að lokinni göngu frá Vesturbugt að Hagamel. Gangan hófst við EVE Online listaverkið við Vesturbugt og gengið eftir Bræðraborgarstíg og Kaplaskjólsvegi að Hagamel og þaðan upp að Kaffihúsi Vesturbæjar. Á leiðinni var staldrað við á nokkrum stöðum nærri Vesturbugt: á lóðinni sem Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni hafði verið úthlutað, Nýlendugarði, og lóðinni…

  • Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 47

    Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 47

    Haldinn 2024.06.24. kl. 16:00 í ráðhúsi Reykjavíkur. Flugumferð í Vesturbæ Á fundinn komu Vilborg Magnúsdóttir, öryggis- og gæðastjóri ISAVIA, og Aðalsteinn Leifsson, fagstjóri flugleiðsögu, og ræddu við fulltrúa íbúaráðsins og svöruðu spurningum þeirra eftir föngum. Í fundargögnum var hljóðvistarskýrsla en þar sem skýrslunni hafði verið bætt við eftir að fundarboð voru send út höfðu ekki allir fundargestir séð skýrsluna. Eins…

  • Dagskrá 43. fundar íbúaráðs Vesturbæjar

    Dagskrá 43. fundar íbúaráðs Vesturbæjar

    Núna á mánudaginn fundar íbúaráð Vesturbæjar en á dagskrá eru nokkur mál sem ráðið mun taka til umræðu. Fyrirspurn um sorphirðu Lagt verður fram svar við fyrirspurn íbúaráðsins frá því í september. Meðal þess sem spurt var um var stefna borgarinnar í málefnum grenndargáma en á þeim fimm mánuðum síðan hún var lögð fram hafa ákveðin atriði þess skýrst. Hverfið…

  • Íbúapúls Vesturbæjar haustið 2023

    Íbúapúls Vesturbæjar haustið 2023

    Miðvikudaginn 15. nóvember milli kl. 17 og 19:30 standa Íbúasamtök Vesturbæjar fyrir spjallviðburði í Samfélagshúsinu Aflagranda 40 þar sem íbúar geta hist og spjallað saman um málefni hverfisins. Léttar veitingar verða í boði auk afþreyingar fyrir yngri íbúa hverfisins. Í salnum verða fjögur borð með þemum: Hlökkum til að sjá og spjalla við þig í Samfélagshúsinu!

  • Fundur Íbúaráðs Vesturbæjar nr. 38

    Fundur Íbúaráðs Vesturbæjar nr. 38

    Haldinn 2023.09.18. kl. 16:00 í samfélagshúsinu Aflagranda 40. Íbúaráð Vesturbæjar fundaði að þessu sinni í samfélagshúsinu Aflagranda 40 og var fundurinn því ekki í streymi. Á dagskrá voru tvær kynningar og framlagning greinargerðar vegna styrks úr hverfissjóði. VoR teymið Reykjavíkurborg rekur svokallað Vettvangs- og ráðgjafateymi sem aðstoðar heimilislaust fólk með vímuefna- eða geðvanda. Verkefnisstjóri teymisins kom og kynnti starfsemina fyrir…

  • Nýr vefur Íbúasamtakanna

    Nýr vefur Íbúasamtakanna

    Íbúasamtök Vesturbæjar hafa um árabil verið með umræðuhóp á Facebook en gagn þótti af því að hafa svæði til að skjala og miðla upplýsingum um starf samtakanna og því var þessi vefur settur á laggirnar.

Scroll to Top