Íbúapúls Vesturbæjar haustið 2023

Miðvikudaginn 15. nóvember milli kl. 17 og 19:30 standa Íbúasamtök Vesturbæjar fyrir spjallviðburði í Samfélagshúsinu Aflagranda 40 þar sem íbúar geta hist og spjallað saman um málefni hverfisins.

\"\"

Léttar veitingar verða í boði auk afþreyingar fyrir yngri íbúa hverfisins. Í salnum verða fjögur borð með þemum:

  • Framkvæmdir í Vesturbæ
    Á döfinni eru ýmsar framkvæmdir í hverfinu líkt og þveranir yfir Hofsvallagötu og hjólastígur eftir Nesvegi. Hvaða framkvæmdir viljum við sjá í hverfinu og hvernig viljum við sjá þeim forgangsraðað?
  • Skólar og frístund
    Hvaða málefni skipta skólana okkar mestu máli? Hvert er aðgengi barna og ungmenna að frístund og íþróttum?
  • Blágræna slæðan
    Grasrótarhópur í Gamla Vesturbæ lætur sig dreyma um að gera meira úr grænum og opnum svæðum með því að hanna ás frá sjó við Hlésgötu og uppá Vesturgötu, svæðið næði í gegnum  fyrirhugaða kirkjulóð og Nýlendugarð/Hólaróló og kannski lengra?
  • Opið borð
    Opið borð til að safna hugmyndum sem ekki falla á eitthvert hinna borðanna.

Hlökkum til að sjá og spjalla við þig í Samfélagshúsinu!

Scroll to Top