Haldinn 2023.09.18. kl. 16:00 í samfélagshúsinu Aflagranda 40.
Íbúaráð Vesturbæjar fundaði að þessu sinni í samfélagshúsinu Aflagranda 40 og var fundurinn því ekki í streymi. Á dagskrá voru tvær kynningar og framlagning greinargerðar vegna styrks úr hverfissjóði.
VoR teymið
Reykjavíkurborg rekur svokallað Vettvangs- og ráðgjafateymi sem aðstoðar heimilislaust fólk með vímuefna- eða geðvanda. Verkefnisstjóri teymisins kom og kynnti starfsemina fyrir ráðinu.
Heimilislausum einstaklingum er annars vegar hjálpað í neyðarskýli og hins vegar í húsnæði og eru nokkur slík rekin í Vesturbænum. Verkefnisstjórinn nefndi sérstaklega að Vesturbæingar hafa sýnt þessum samborgurum sínum sérstaklegan skilning og samhygð. Verkefnið er ærið enda skilar skaðaminnkandi nálgunin lengri ævi og auknum lífsgæðum fólks í neyslu.
Helstu áskoranir væru þær að ríkið skortir algerlega yfirlýsta stefnu í málefnum heimilislausra og þrýstingur þyrfti að koma þaðan á önnur sveitarfélög að sinna þessum málaflokki. Dæmi eru þess að heimilislausir einstaklingar breyti um lögheimili til að nálgast úrræði Reykjavíkurborgar en kysu heldur að búa í sinni heimabyggð, sumir hverjir á landsbyggðinni.
Samfélagshúsin
Vesturmiðstöð hefur nú í sjö ár rekið tilraunverkefni um samfélagshús. Þau eru þrjú: Eitt í Bólstaðarhlíð 43, annað á Vitatorgi, og það þriðja að Aflagranda 40. Í samfélagshúsinu fer fram margvísleg starfsemi sem vert er að hvetja alla Vesturbæinga að kynna sér og nýta.
Greinargerð vegna styrkveitingar
Veittur var styrkur vegna þrettándahátíðar Foreldrafélags Melaskóla. Því miður nær markmið hverfissjóðs ekki utan um árlega viðburði og því er ekki ljóst hvernig verkefninu verður áfram haldið.