
Íbúasamtök Vesturbæjar
Samtökin eru grasrótarsamtök íbúa í hverfinu til að skapa vettvang fyrir umræðu um málefni hverfisins, miðla upplýsingum til íbúa hverfisins til að byggja þá umræðu á, og koma sjónarmiðum íbúa á framfæri við starfsfólk og kjörna fulltrúa Reykjavíkurborgar.
Samtökin halda úti umræðuhópinum Íbúasamtök Vesturbæjar á Facebook og póstlista (skráðu þig hér).
-
Aðalfundur 2026 og ný stjórn
Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar var haldinn í Hagaskóla síðastliðinn fimmtudag. Farið var í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf, ný stjórn kjörin og svo fóru fram umræður um málefni fundarins. Nýja stjórn mynda: Martin Jónas B. Swift, formaður, Árni Björn Helgason, Katrín Halldórsdóttir, Símon Flender, og Örn Þór Halldórsson. Fundargerð aðalfundar Fundur settur Martin Swift setur fund. Ásta Olga tekur við fundarstjórn og Martin…
-
Umferðarhraði á Hringbraut
Vesturbærinn er sérstakt hverfi fyrir margra hluta sakir. Hverfið mótaðist á tíma örs vaxtar borgarinnar og ber þess víða merki. Hringbrautin er gott dæmi um það en vegurinn var hugsaður sem hringvegur umhverfis byggðina í Reykjavík og fylgdi staðsetning hennar legu járnbrautarinnar sem flutti efni úr Öskjuhlíð til byggingar hafnagarða Reykjavíkurhafnar á árunum 1913-1917. Hringbrautin átti að vera stofnbraut umhverfis…
-
Aðalfundur 2026
Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar verður haldinn fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 17 í Hagaskóla. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf sem eiga ekki að taka umtalsverðan tíma og gengið út frá því að nægur tími verði fyrir umræður um málefni hverfisins. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins er: Þau sem eru á samfélagsmiðlinum Facebook geta skráð þátttöku sína þar: https://fb.me/e/a4JeFkfen
Málefni Vesturbæjar
Hér eru nokkur málefni sem hafa verið til umræðu á vettvangi Íbúasamtaka Vesturbæjar.










