Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 47

Haldinn 2024.06.24. kl. 16:00 í ráðhúsi Reykjavíkur.

Flugumferð í Vesturbæ

Á fundinn komu Vilborg Magnúsdóttir, öryggis- og gæðastjóri ISAVIA, og Aðalsteinn Leifsson, fagstjóri flugleiðsögu, og ræddu við fulltrúa íbúaráðsins og svöruðu spurningum þeirra eftir föngum.

Í fundargögnum var hljóðvistarskýrsla en þar sem skýrslunni hafði verið bætt við eftir að fundarboð voru send út höfðu ekki allir fundargestir séð skýrsluna. Eins kom á daginn að fulltrúar ISAVIA höfðu ekki fengið að vita fundarefnið fyrirfram.

Í samtalinu kom fram að þyrluumferð hefur aukist en sá kúfur sem mörg töldu sig hafa upplifað í kringum gosið er ekki vegna aukinnar umferðar. Árið 2019 kom lægð í umferð um flugvöllinn og hún hefur aukist hægt síðan. Aðalsteinn staðfesti að um flugumferð yfir Vesturbænum gilda þær reglur að ekki skal flogið undir 300 metra hæð eða 1000 fetum yfir jörðu. Þetta eru viðmiðunarreglur en sumstaðar hafa verið settar strangari reglur.

Aðalsteinn lýsti einnig verklagsreglum við flugtak og lendingu. Ein af þessum verklagsreglum er að beygja ekki við flugtak til norðurs fyrr en í 1000 feta hæð, og við flugtak til vesturs að beygja ekki fyrr en í 800 feta hæð. Þyrlur hafa eins verið beðnar að taka brattara brott- og aðflug, og að þær fari sem fyrst í 2000 feta hæð. Með þessum verklagsreglum er hins vegar ekkert eftirlit af hálfu ISAVIA.

Ein leið til að fylgjast með því væri að hafa tæki um borð í flugvélunum sem skrá staðsetningu og hæð þeirra. Slík tækni er til, kallast ADS-B og hægt er að fylgjast með vélum sem eru með virkan ADS-B búnað á þjónustum eins og FlightRadar24. Aðalsteinn sagðist hafa verið í viðræðum við Samgöngustofu um að leggja kröfu á slíkan búnað í vélar, a.m.k. þær sem eru í blindflugi.

Eina önnur leið til að fylgjast með flugumferð er með ratsjá sem staðsett er í Keflavík. Flugumferðarstjórn vaktar þó ekki þann skjá.

ISAVIA er með form fyrir tilkynningar vegna ónæðis frá flugvélum og Vilborg lýsti aðeins umsjón með þeim. Þetta er reglulega tekið saman og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist með þeim. Árlega berast einhverjir tugir ábendinga og umtalsverð aukning orðið á, þá sér í lagi vegna þyrluumferðarinnar.

Hljóðvistarskýrslan sem fylgdi fundardagskrá er frá 2022. Til er eldri skýrsla frá árinu 2014 en hún hefur ekki verið birt. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur sér um að láta útbúa þessar skýrslur og ákveða hvort trúnaður skuli ríkja um þær.

Fram fór umræða um flutning þyrluflugsins. Það er á vettvangi Samgöngustofu og flugrekenda en ISAVIA kemur ekki formlega að því. Samkvæmt því sem Aðalsteinn vissi er ekki verið að vinna að þessu. ISAVIA hefur þó stutt þær hugmyndir að færa þyrluflugið, t.d. suður fyrir Hafnafjörð. Það gæti þá minnkað áhrif á íbúa og eins haft jákvæð áhrif á flugvöllinn en umferð í kringum hann sem yrði þá einfaldari.

Þjónustukönnun íbúa

Lögð var fram þjónustukönnun íbúa sem lögð var fram í árslok 2023. Þar var m.a. spurt hvort fólk þekkti til íbúaráða. Bent var á að mögulega væri ekki ljóst hvort þar sé fólk að rugla því saman við íbúasamtök. Nokkuð stórt hlutfall segist hafa mætt á fundi, en þar sem íbúaráðin hafa verið með fáa gesti er nokkuð líklegt að þarna sé einhver misskilningur í gangi nema þetta sé vísun í eldri ráð.

Vesturbæingar hafa nokkuð meiri áhuga á því að hafa áhrif á þjónustu borgarinnar í menningarmálum, mannréttindamálum, og skipulagsmálum en síður á íþróttamál, málefni eldri borgara, og umhirðu borgarinnar.

\"\"

Samantekt íbúafunda borgarstjóra

Á fundinum var lögð fram samantekt á íbúafundi sem borgarstjóri hélt í Vesturbæjarskóla 6. apríl 2024 en alls voru haldnir 10 fundir í hverfum borgarinnar. Nokkur samrómur var um að Vesturbæingar meta mjög bæjarbraginn og að þjónustan í hverfiskjarnanum skiptir máli. Helst þótti fundargestum umferðaröryggi og samgönguinnviðir ábótavant, sér í lagi tengingar út á Granda.

Tillögur íbúaráðs að fjárfestingar og viðhaldsáætlun

Lagðar voru einnig fram tillögur íbúaráðs Vesturbæjar fyrir fjárfestingar og viðhaldsáætlun borgarinnar. Tillögurnar lutu að hjólastíg norður meðfram ströndinni frá Ægisíðu, endurskoðun gönguþverana, og hraðatemprun við Mela- og Vesturbæjarskóla.

Umsagnarbeiðni um nærþjónustukjarna í Skerjafirði

Óskað hefur verið eftir því að nærþjónustukjarninn í Skerjafirði verði endurskipulagður þannig að þar þurfi ekki að vera nærþjónusta. Þar hefur verið rekin verslun og nú síðast var Bike Cave þar til húsa. Skerjafjörður hefur ekki staðið undir verslun þar en stefnt er að uppbyggingu í Nýja Skerjafjarðar og stærri kjarna þar. Fundurinn fól formanni að skila inn umsókn í samræmi við umræðurnar.

Stækkun á gjaldsvæðum

Að lokum var lagt fram bréf um umhverfis- og skipulagssviðs dags. 13. júní 2024, um samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs á tillögu um stækkun á gjaldsvæðum bílastæða. Rædd voru ólíkir fletir á því. Sumir íbúar kvarta undan því að dýrt sé fyrir gesti að koma í heimsókn, en á móti er hægt að finna stæði. Bent var á dæmi þess að íbúar sem hafa verið uggandi yfir gjaldskyldu hafi verið sátt eftir að þau sáu hvað það losaði mikið um bíla að leggja að óþörfu.

Eins var nefnt að íbúar hafa verið að kvarta undan ákveðnum jaðartilfellum. Íbúðir í Vesturbæ eru sumar ekki skipt rétt eftir fastanúmerum og því ekki allir íbúar sem hafa rétt á íbúðakortum. Áhugi var fyrir því að taka það til umræðu.

Málefni hverfisins

Rætt var um mál til að taka fyrir á næsta starfsvetri. Meðal þeirra var það hvort nægilega væri hugað að samlegð framkvæmda (nefnt var dæmið um þverunina milli Kaffi Vest og Vesturbæjarlaugar en þar var gerð þverun með fláum fyrir nokkrum árum sem nú var rifin til að gera þar þverun í plani við gangstéttir) og endurskoðun Hofsvallagötu.

Ítarefni

1 thought on “Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 47”

  1. Pingback: Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 48 – Íbúasamtök Vesturbæjar

Comments are closed.

Scroll to Top