Fundur íbúaráðs Vesturbæjar nr. 48

Tilnefning foreldrafélaga í íbúaráði Vesturbæjar

Tímabilið 2022-24 sátu þær Magnea Guðrún Gunnarsdóttir og Anna Lísa Björnsdóttir sem fulltrúar foreldrafélaga í íbúaráði Vesturbæjar. Við þeim taka Bjarni Magnússon úr foreldrafélagi Melaskóla og Arnar Þór Snorrason úr foreldrafélagi Vesturbæjarskóla.

Kynning á deiliskipulagsbreytingu tengdri nærþjónustukjarna í Skerjafirði

Á síðasta fundi var kynnt deiliskipulagsbreyting sem felur í sér að nærþjónustukjarninn í Skerjafirði verði endurskipulagður svo breyta megi honum í íbúðahúsnæði. Það felur í sér lækkun gjalda fyrir eigendur en íbúaþéttleikinn í hverfinu hefur illa staðið undir þjónustu þarna. Fyrirséð er að með uppbyggingu Nýja Skerjafjarðar verði settur upp nýr hverfiskjarni sem betur geti þjónustað Skerjafjörðinn og því var almenn sátt um að mæla ekki gegn breytingunni.

Skipulagsstofnun hefur hins vegar bent á að um verulega breytingu sé að ræða sem kalli á að hún fari í formlegt ferli með auglýsingu. Borgin hefur orðið við því og komu þau Haraldur Sigurðsson og Margrét Lára Baldursdóttir á fundinn til að kynna breyingartillöguna.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir hverfiskjarna (gulir) og nærþjónustukjarna (grænir). Fari nærþjónustukjarninn við gatnamót Einarsness og Bauganess verður stórt gat í aðgengi íbúa þar að nokkurri þjónustu. Reyndar búa íbúar austan Boðagranda og norðan Faxaskjóls við sömu stöðu, og eins og Háskólasvæðið ber með sér er ekkert sem kemur í veg fyrir að nærþjónusta sé í boði þótt ekki sé gert ráð fyrir því í deiliskipulagi.

\"\"

Eins og sjá má á myndinni hér að neðan er þéttleiki byggðar í Stóra Skerjafirði ekki mikill – reyndar einstaklega lítill – sem hamlar því að hægt sé að reka sjálfbæra verslun eða þjónustu.

\"\"

Gegn deiliskipulagsbreytingunni mælir annars vegar að með því er umtalsvert ólíklegra að verslun opni aftur í húsnæðinu og hins vegar að þetta kann að verða að einhverju leyti fordæmi. Með deiliskipulaginu mælir að húsnæði sem ekki bar verslunarstarfsemi verður breytt í annars kyns gagnlegt húsnæði, og við þetta lækka lóðagjöld á fasteignaeiganda í samræmi við nýja notkun. Annars er það svo að kvöð um nærþjónustu í deiliskipulagi er engin trygging fyrir því að slík starfsemi sé á staðnum og mörg dæmi eru þess að húsnæði sé lengi vel nýtt sem íbúð þótt það sé skipulagt fyrir verslun eða þjónustu.

Íbúar Skerjafjarðar eru hvattir til að kynna sér og ræða málið, og skila inn athugasemd þegar opnar fyrir slíkt á síðu málsins í skipulagsgátt (það er hægt að skrá sig sem notanda og skrá sig fyrir tilkynningum á uppfærslum).

Gervigrasvöllur KR í Frostaskjóli

Gervigrasvöllurinn var lagður fyrir um tveimur árum og sást fljótt að eitthvað var ekki með felldu. Nýlega var völlurinn úrskurðaður óhæfur til keppni vegna hættu á meiðslum og hefur neyðst til að fella niður eða færa æfingar á aðra velli. KR hefur fengið óháða aðila til að taka gervigrasið út og er niðurstaða þeirra að flötin sé ónýt.

Enn er óljóst hvort framleiðandi samþykki að um galla sé að ræða en Reykjavíkurborg hefur sagst munu greiða fyrir nýjan dúk ef framleiðandinn samþykkir ekki bótaskyldu sína. Á því eru hins vegar engar tímasetningar.

Málið var rætt að nokkru leyti og að endingu samþykkt að senda eftirfarandi fyrirspurn:

Staðan á gervigrasinu í KR er alvarleg. Um 800 börn hafa misst aðstöðuna til að iðka fótbolta. Óháðir aðilar hafa fallist á að nýja gervigrasið er ónothæft til að keppa á og því væntanlega einnig til að æfa og allar æfingar færðar af gervigrasinu. Brýnt er að upplýsa börn, foreldra og félag um stöðuna eins vel og hægt er, jafnt og þétt. Íbúaráð Vesturbæjar óskar eftir upplýsingum um stöðuna, hvað er að gerast í þessu máli og hvernig framhaldinu verði háttað. Hver er tímalínan fyrir nauðsynlega vinnu við gervigrasið? Hver borgar fyrir framkvæmdirnar? Hvað munu þær kosta og hvernig verður fjármagnið tryggt ef Reykjavíkurborg þarf að borga? Hvert fara börnin á meðan? Hver borgar fyrir ferðir barnanna ef þau þurfa að fara út úr hverfinu? Er hægt að gera einhverjar bráðabirgðaráðstafanir sem bjargar æfingavetrinum fyrir börnin sem æfa í KR? Hvernig spilar þetta inn í framtíðarskipulag á KR-svæðinu? Hvernig munu börn, foreldrar og félag fá upplýsingar um framkvæmdirnar? Svara er óskað jafnóðum eftir því sem þau liggja fyrir. MSS22090034

Umferðaröryggismál í Vesturbæ

Umferðaröryggismál standa íbúum nærri og var umræða um hvaða götur þyrftu sérstaka athygli. Sérstaklega var rætt um hraðakstur og hraðatemprandi aðgerðir nyrst í hverfinu – við Mýrargötu og Ánanaust – en einnig sunnar við Neshaga, og svo á beinum brautum Hofsvallagötu, Suðurgötu, og Hringbrautar.

Gjaldskylda tekin upp í Vesturbæ

Búið er að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við nokkrar götur í Vesturbænum. Á Háskólasvæðinu eru það Sturlugata, Aragata, Oddagata, og Sæmundargata, og í gamla Vesturbæ eru það Seljavegur, og Vesturgata milli Ánanaustar og Stýrimannastígs.

Breyting á deiliskipulagi vegna eldsneytisstöðvar við Fiskislóð

Einhverju breytt en litlu.

Fundardagatal haustins

Smávægilegar breytingar gerðar á fundardagatali til að draga úr árekstrum við aðra fundi fulltrúa.

Málefni hverfisins

Opið er fyrir umsóknir í Hverfissjóð. Starfsmaður ráðsins hvatti fulltrúa til að nýta tengslanetið til að láta vita af því.

Scroll to Top