-
Aðalfundur 2026 og ný stjórn
Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar var haldinn í Hagaskóla síðastliðinn fimmtudag. Farið var í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf, ný stjórn kjörin og svo fóru fram umræður um málefni fundarins. Nýja stjórn mynda: Martin Jónas B. Swift, formaður, Árni Björn Helgason, Katrín Halldórsdóttir, Símon Flender, og Örn Þór Halldórsson. Fundargerð aðalfundar Fundur settur Martin Swift setur fund. Ásta Olga tekur við fundarstjórn og Martin…
-
Umferðarhraði á Hringbraut
Vesturbærinn er sérstakt hverfi fyrir margra hluta sakir. Hverfið mótaðist á tíma örs vaxtar borgarinnar og ber þess víða merki. Hringbrautin er gott dæmi um það en vegurinn var hugsaður sem hringvegur umhverfis byggðina í Reykjavík og fylgdi staðsetning hennar legu járnbrautarinnar sem flutti efni úr Öskjuhlíð til byggingar hafnagarða Reykjavíkurhafnar á árunum 1913-1917. Hringbrautin átti að vera stofnbraut umhverfis…
-
Aðalfundur 2026
Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar verður haldinn fimmtudaginn 10. september 2026 kl. 17 í Hagaskóla. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf sem eiga ekki að taka umtalsverðan tíma og gengið út frá því að nægur tími verði fyrir umræður um málefni hverfisins. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins er: Þau sem eru á samfélagsmiðlinum Facebook geta skráð þátttöku sína þar: https://fb.me/e/a4JeFkfen
-
Hér rís nýr vefur Íbúasamtaka Vesturbæjar
Kæru grannar, Íbúasamtök Vesturbæjar hafa verið með vefsíðuna vesturbaerinn.wordpress.com í nokkur ár en það hefur staðið henni fyrir þrifum að ekki er hægt að stilla henni upp hvernig sem er og mögulega hafa birst þar einhverjar auglýsingar inni á síðunni sem Íbúasamtökin hafa enga stjórn á. Því var það metið svo að tími væri kominn á að koma vefnum á…
-
Áherslur Vesturbæinga 2026
Í kjölfar kosninga til sveitarstjórna sendi stjórn Íbúasamtakanna út könnun í umræðuhópi samtakanna á Facebook um hvaða málefni Vesturbæingar vildu sjá lagða áherslu á. Þátttaka var ágæt en alls merktu 616 aðilar við eitt eða fleiri atriði. Eftir sameiningu atriða sem tengsast í gegnum áveðið þema voru niðurstöðurnar eftirfarandi: Niðurstöðurnar koma svosum ekki á óvart enda umferðaröryggi iðulega efst á…
-
Fyrirspurnir til framboða til borgarstjórnar 2026
Íbúasamtökin hafa verið vettvangur Vesturbæinga fyrir samskipti við borgaina í nokkrum málaflokkum á undanförnum árum. Ýmis atriði brenna á íbúum fyrir kosningarnar og ákvað stjórn því að óska eftir svörum frá framboðunum um nokkur þeirra. Hugmyndir höfðu verið um að vera snemma á ferð, útbúa ítarlegri spurningar, safna saman spurningum frá Vesturbæingum og jafnvel vera með pallborðsumræður frambjóðenda í hverfinu.…
-
Hofsvallagötufundur
Íbúafundur Íbúasamtaka Vesturbæjar haldinn á Kaffihúsi Vesturbæjar miðvikudaginn 3. september 2025 til að ræða málefni Hofsvallagötunnar. Gestir skiptu sér í tvo hópa sem fjölluðu að mestu um sitt hvorn hluta Hofsvallagötunnar, sunnan og norðan Hringbrautar. Umræðunni til stuðnings voru útprentuð kort og hálfgegnsæ blöð til að máta lausnir við. Atriði sem komu fram, raðað frá suðri til norðurs Sleppa framhjáhlaupi…
-
Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar starfsveturinn 2025-26
Aðalfundur íbúasamtakanna var haldinn 10. september 2025 á Slippbarnum. Til fundar mættu um 12 íbúar. Á fundinum var skýrsla stjórnar lögð fram og umræður spunnust í kringum hana. Rætt var um orsakir þess að íbúaráðin voru lögð niður en þau höfðu ekki verið að nýtast sem skyldi og æskilegt að eitthvað gagnlegt komi úr þeirri vinnu sem borgin er að…









