Aðalfundur 2026 og ný stjórn

Aðalfundur Íbúasamtaka Vesturbæjar var haldinn í Hagaskóla síðastliðinn fimmtudag. Farið var í gegnum hefðbundin aðalfundarstörf, ný stjórn kjörin og svo fóru fram umræður um málefni fundarins.

Nýja stjórn mynda: Martin Jónas B. Swift, formaður, Árni Björn Helgason, Katrín Halldórsdóttir, Símon Flender, og Örn Þór Halldórsson.

Fundargerð aðalfundar

Fundur settur

Martin Swift setur fund. Ásta Olga tekur við fundarstjórn og Martin Jónas tekur að sér fundarritun.

Skýrsla stjórnar

Skýrsla er lögð fyrir fundinn.

Lagabreytingar

Engar lagabreytingartillögur voru lagðar til.

Kosning stjórnar

Martin býður sig fram til formanns og er kosinn einróma.

Í stöður meðstjórnenda og bjóða sig fram: Árni Björn Helgason, Katrín Halldórsdóttir, Símon Flender, og Örn Þór Halldórsson. Þau eru kosin einróma.

Önnur mál

Undir liðnum kynnti hver fundargestur sig og lýsti sínum hugðarefnum eða aðkomu að málefnum hverfisins. Í umræðunum var komið inn á ýmis málefni.

Í kringum Listagalleríið, kofa sem börn reistu með aðstoð foreldra á jaðri Lynghagarólós,  málefni Lynghagarólós, mótaðist hópur fólks sem tryggði að kofinn fékk að standa. Hópurinn hefur verið að endurvekja Grím, vináttufélag Lynghagaleikvallarins, til að standa vörð um hagsmuni íbúa, sér í lagi barna. Við Lynghaga hefur verið mikil stemmning í kringum Reykjavíkurmaraþonið. Götunni var lokað fyrir bílaumferð í ár og reyndist ágæt æfing fyrir þess lags viðburði þótt veðrið hefði haldið mörgum innivið.

Barátta fyrir leikvöllum er ekki nýtt verkefni en við enda Bræðraborgarstígs reistu íbúar leikvöll sem síðar fékk að halda sér. Svæðið býður upp á stækkun almenningsrýmis og bætt tengingu stranda á milli eftir Bræðraborgarstíg og Kaplaskjólsvegi. Vesturbugt hefur mikið verið í umræðu íbúa í hverfinu og ítrekað leitast eftir samráði vegna uppbyggingar þar. Því miður hefur þeim umleitunum iðulega verið hafnað eða hagaðilar bent hver á annan.

Í tengslum við Sæmundarhlíð hefur annar hópur verið að berjast fyrir því að hverfisvernd komi í veg fyrir að sögulegt verndað hús verði varðveitt, en í ljósi slæms ástands hefur eigandi óskað eftir niðurrifi þess. Afar illa gengur að hvetja borgina til að fylgja verndarákvæðum og svo virðist sem hún óttist skaðabótamál þótt engin fordæmi séu fyrir slíku. Hins vegar eru líkur á að nú með nýjum meirihluta verði áherslum breytt.

Við Hringbraut hafa íbúar myndað annan hóp sem berst fyrir fegrun götunnar og temprunar ökuhraða, m.a. með því að koma fyrir gróðri á miðdeilinum. Þau hafa líka verið að þrýsta á um hraðamyndavélar en tregða er hjá Vegagerðinni sem vill heldur myndavélar sem mynda það þegar farið er yfir á rauðu ljósi. Þau hafa fundað með Vegagerðinni og í bígerð er að funda með Lögreglunni.

Ýmsir möguleikar eru á umbótum við Hringbraut en þar vegstæðið nokkuð breitt fyrir akveg og gangstéttir, en heldur grannt fyrir tvær akstursstefnur, hjólreiðastíg og bílastæði. Hringbrautin er þó mikilvæg fyrir Vesturbæinga og rétt að gefa henni gaum. Við hana búa rétt um þúsund íbúar sem gerir hana einni fjölmennustu íbúagötu landsins, ef ekki þeirri fjölmennustu. Víðar þarf þó að huga að umferðaröryggismálum og er Hofsvallagatan oft nefnd í því samhengi.

Íbúum er einnig afar annt um græn svæði í hverfinu og mjög mikilvægt er að standa vörð um þau. Rætt var um mikilvægi þess að halda svæðum ekki bara opnum heldur náttúrulegum, t.d. Ægisíðunni.

Scroll to Top