Vesturbærinn er sérstakt hverfi fyrir margra hluta sakir. Hverfið mótaðist á tíma örs vaxtar borgarinnar og ber þess víða merki. Hringbrautin er gott dæmi um það en vegurinn var hugsaður sem hringvegur umhverfis byggðina í Reykjavík og fylgdi staðsetning hennar legu járnbrautarinnar sem flutti efni úr Öskjuhlíð til byggingar hafnagarða Reykjavíkurhafnar á árunum 1913-1917. Hringbrautin átti að vera stofnbraut umhverfis bæinn en byggðin teygði sig fljótlega yfir á Melana og síðar Hagana og út í Skjólin og síðan þá hefur Hringbrautin skorið Vesturbæinn í tvennt.
Þessi skurður birtist einna helst í þeim farartálma sem Hringbrautin er á leið fólks — sér í lagi skólabarna — um hverfið. Íþróttaþátttaka barna fellur hratt þegar inn fyrir Hringbraut er komið þrátt fyrir að Framnesvegur og Bárugata séu ekki fjær Frostaskjólinu en Fálkagata og Birkimelur. Eins eru allt of mörg dæmi eru þess að ekið sé yfir á rauðu ljósi við gatnamót Hringbrautar sem veldur því að foreldrar eru eðlilega uggandi yfir því að hleypa börnum sínum einum yfir götuna.
Inn í það spilar einnig umferðarhraðinn sem bæði setur brag á umhverfið og elur á eðlilegum ótta við umferðina. Til mikils er að vinna með því að tempra hraða bílaumferðar á Hringbrautinni en til þess að greina umfang vandans og sóknarfæri er gott að hafa einhver gögn til að vinna með til að setja upplifun íbúa í samhengi. Hér að neðan er úrvinnsla úr umferðarskynjurum Reykjavíkurborgar sem mæla fjölda ökutækja og hraða þeirra á 90 sekúndna tímabilum. Það samsvarar þeim umferðarljósataktinum en ljósin fara heilan hring (grænt á allar stefnur) á 90 sekúndum.
Fyrirvarar á túlkun gagna um umferðarhraða
Tvennt er þó vert að hafa í huga: Hraðagildin eru meðalhraði og því eru einhverjir bílar sem aka hægar en uppgefin gildi og aðrir sem aka hraðar. Hitt er að þar sem skynjarar eru oft stutt frá gatnamótum eru bílstjórar oft að hægja á sér við rautt ljós framundan, eða ennþá að ná upp hraða frá síðustu gatnamótum (hvort sem það er úr hringtorgi eða af rauðu ljósi). Þetta skekkir gögnin eitthvað og veldur því að mældur meðalhraði nær ekki dreifingu hraða bíla, sér í lagi hraða bíla í frjálsu flæði á grænu ljósi.
Við getum hins vegar notað gögnin til að fá upplýsingar um mynstur í umfangi og hraða umferðar á ólíkum svæðum og tímum (bæði tímum dags, á mismunandi dögum vikunnar eða jafnvel árstímum). Skoðum nokkra þætti sem greina má í gögnunum.
Þau sem vilja skoða gögnin sjálf geta fundið þau hér á vef Íbúasamtakanna: vesturbaeingar.is/umferdartalningar/
Umferðarhraðinn á leið austur og vestur
Umferðin á leiðinni austur er almennnt hægari en vestur. Við Grandatorg er umferðin vel innan hámarkshraða enda nýkomið úr hringtorginu og ekki rými komið til að gefa í. Þegar nær dregur Hringbraut fellur hraðinn … á álagstímum, en hún eykst þegar umferð er í frjálsu flæði.



Norðan við Melatorg er umferðin svipuð og við Ánanaustin enda fólk að hægja á sér fyrir Hringtorgið. Hér kann að spila inn í sá kostur hringtorgs að fólk er ekki undir pressu um að ná græna ljósinu.
Á vesturleiðinni er umferðin öllu hraðari, en sagan er svipuð við Melatorg úr þessari átt eins og við Grandatorg úr hinni: Bílarnir hafa líklega bara ekki náð að gefa í eftir hringtorgið. Við Grund er meðalhraðinn orðinn meiri. Frá árdegisumferðinni og fram undir hádegi er hraðinn nálægt hámarkshraða en liggur undir honum fram að kvöldmatartíma. Þá eykst hann og er um 50 km/klst fram undir morgun.


Höfum aftur hugfast að hvort tveggja er þetta meðalhraði — sum aka hægar og önnur hraðar — en hins vegar að þetta eru neðri mörk því sumir ökumenn eru ennþá að auka hraðann frá Melatorgi eða hægja á sér við Hringbraut, eða annað hvort við gangbrautarljósin við Grund. Í febrúar árið 2021 gerði lögreglan hraðamælingar við Ljósvallagötu og þá ók um fjórðungur allra bíla yfir hámarkshraða. Aðrar mælingar á öðrum stöðum sýna að um 10-20% ökumanna aka töluvert yfir hámarkshraða.
Vesturleiðin virðist hins vegar oftar vera í „frjálsu flæði“ (færri tafir vegna fjölda bíla) og það skilar sér í auknum hraða; og þeim mun meiri eftir því sem vestar dregur. Rétt norðan við Bræðraborgarstíg er mældur meðalhraði alltaf yfir hámarkshraða. Það vekur sérstakan ugg að þessi hraðasti hluti Hringbrautarinnar er á þeim kafla sem liggur framhjá skólalóð Vesturbæjarskóla.



Ýmsar leiðir eru til að tempra umferðarhraðann. Hópur íbúa við Hringbraut hefur þrýst á að fá tré gróðursett á miðdeili Hringbrautar, en reynsla erlendis frá sýnir að tré hafa þau áhrif á ökumenn að þeir draga úr hraðanum. Lækkun (og fjölgun) ljóskerja getur gert svipað. Einnig hefur verið rætt um að koma upp hraðamyndavélum — jafnvel meðalhraðamyndavélum — eða víkka gagnstéttina við Vesturbæjarskóla.



Hver leið hefur sína kosti og galla, en miðað við þær tíðu sögur af nærri-því-slysum og skerðingu á aðgengi ungmenna að tómstundum er full ástæða til að sætta sig ekki við núverandi ástand og krefjast umbóta við Hringbraut.