Aðalfundur haldinn 11. September 2024 kl. 19 á Kaffihúsi Vesturbæjar að lokinni göngu frá Vesturbugt að Hagamel.
Gangan hófst við EVE Online listaverkið við Vesturbugt og gengið eftir Bræðraborgarstíg og Kaplaskjólsvegi að Hagamel og þaðan upp að Kaffihúsi Vesturbæjar. Á leiðinni var staldrað við á nokkrum stöðum nærri Vesturbugt: á lóðinni sem Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni hafði verið úthlutað, Nýlendugarði, og lóðinni við Bræðraborgarstíg 1. Þessir reitir bjóða upp á mikla möguleika til að tengja saman græn almenningsrými sem munu bæta lífsgæði í hverfinu til muna.




Við gatnamót Bræðraborgarstígs og Öldugötu stiklaði Pétur H. Ármannsson í sögu hverfisins og hvernig ólík byggðamynstur hafa blandast saman. Stök hús og randbyggðir, m.a. steinsteipt hús með turnum sem áttu að mótast yfir í randbyggðir sem aldrei urðu. Benti á að oft er þessi fjölbreytni notuð til að réttlæta uppbyggingu steinsteyptrar randbyggðar þar sem nú standa gömul bárujárnshús. Á hverfishlutanum er hverfisvernd og hefur Minjastofnun mælt fyrir því að hana skuli túlka á þann veg að vernda þá húsagerð sem á heldur í vök að verjast. Þar með skuli ekki rífa gömul, stök hús og byggja steinsteypta randbyggð í hennar stað, heldur vernda þau og reisa önnur eins í stað þeirra sem rifin eru.


Við gatnamót Bræðraborgarstígs og Sólvallagötu benti Ásta Olga á Bræðraborgarstíg 39-43 sem dæmi um hvernig hægt er að hanna hús án þess að það tróni yfir. Stöllun bygginganna léttir mun meira yfir byggðinni en ef þær væru allar jafnháar. Við Bræðraborgarstíg 1 og 3 vilja lóðahafar einmitt reisa hús sem er í flútti við Bræðraborgarstíg 5. Það mundi búa til mjög stóra byggingu vegna hallans á götunni og virka mjög þunglamalega.
Lokastaldrið var í inngarði Verkamannabústaðanna sem eru dæmi um þétta en lágreista byggð sem Pétur sagði vert að draga lærdóm af.


Ráðgert hafði verið að halda áfram niður Kaplaskjólsveg, eftir Sörlaskjóli og svo upp Hofsvallagötu en umræður á leiðinni höfðu verið svo miklar að göngufólk náði ekki nema að Hagamel áður en haldið var til aðalfundar á Kaffihúsi Vesturbæjar.


Fundur settur
Ásta Olga Magnúsdóttir setur fund í fjarveru formanns. Martin J. B. Swift tekur að sér fundarstjórn og fundarritun.
Skýrsla stjórnar
Skýrsla stjórnar er lögð fyrir fundinn og samþykkt einróma.
Lagabreytingar
Í tengslum við umsókn um kennitölu eru lagðar fram endurskoðuð lög félagsins og eru þau samþykkt einróma.
Kosning stjórnar
Davíð Fjölnir Ármannsson býður sig fram til formanns og er kosinn einróma.
Í stjórn bjóða sig einni fram: Ásta Olga Magnúsdóttir og Martin Jónas Björn Swift. Eru þau samþykkt.
Önnur mál
Skrifað er undir umsókn um skráningu og úthlutun á kennitölu.
Fundi lýkur á umræðu um málefni hverfisins. Á fundinn koma Manda Jónsdóttir og Daði Rafnsson frá nýstofnuðu íbúasamtökunum Hljóðmörk og ræddu málefni ónæðis af völdum óþarfa flugumferðar.