Dagskrá 43. fundar íbúaráðs Vesturbæjar

Núna á mánudaginn fundar íbúaráð Vesturbæjar en á dagskrá eru nokkur mál sem ráðið mun taka til umræðu.

Fyrirspurn um sorphirðu

Lagt verður fram svar við fyrirspurn íbúaráðsins frá því í september. Meðal þess sem spurt var um var stefna borgarinnar í málefnum grenndargáma en á þeim fimm mánuðum síðan hún var lögð fram hafa ákveðin atriði þess skýrst.

Hverfið mitt

Búið er að velja verkefnin sem hlutu framgang í Vesturbænum. Þau eru:

Frekari lækkun hámarkshraða

Undir lok árs 2022 var samþykkt að lækka hámarkshraða á nokkrum völdum stöðum. Þetta voru almennt mjög tímabærar ákvarðanir. Meðal ákvarðana var að lækka hraðann á Hofsvallagötu milli Einimels og Hagamels niður í 30 km/klst, og Einarsnessins, austan litla botlangans.

Þetta átti að koma til framkvæmda í fyrra en tafðist víst vegna þess að ekki fengust verktakar í að skipta út öllum þeim skiltum sem þurfti að uppfæra. Nú eru komnar tillögur um að bæta við nokkrum götum þar sem hámarkshraði verður 30 km/klst:

  • Einarsnes
  • Hofsvallagata
  • Ægissíða og Nesvegur

Óskað hefur verið eftir því að íbúaráðið komi með umsögn um þetta atriði.

Verklagsreglur um fyrirspurnir og tillögur í ráðum og nefndum

Framlagning verklagsreglna um fyrirspurnir og tillögur sem fulltrúar í ráðum og nefndum geta lagt fyrir borgina.

Deiliskipulasgbreyting fyrir orkuáfyllingarstöð á Granda

Það á að færa N1 stöðina af Ægisíðu 102 yfir á Granda, á lóðina við Krónuna:

Stefnumótun um þjónustu aldraðra

Tillaga um fulltrúa verðandi notenda á stefnumótunarfund um þjónustu við aldraða.

Málefni hverfisins

Hér má taka upp málefni sem ekki komust inn á dagskrá fundarins.

Scroll to Top