Stjórn fundaði í síðustu viku og lagði drög að dagskrá og áhersluatriðum komandi starfsárs. Stefnt er að því að halda mánaðarlega stjórnarfundi, á föstudögum tveimur vikum fyrir íbúaráðsfund.
Áhugi er á því að fylgja eftir sögugöngunni sem var fyrir aðalfundinn um daginn og móta áfram hugmyndir fyrir almenningsrýmin í hverfinu. Gott væri þá að fá aftur innlegg frá gesti sem leitt getur gönguna.
Rædd voru nokkur mál sem eru í deiglunni. Íbúar eru margir hverjir ósáttir við breytingar á sánunum í Vesturbæjarlaug. Búið er að sameina sánuklefa karla og kvenna en ábendingar um neikvæð áhrif þess hafa m.a. borist frá kynjafræðingum.
Íbúasamtökunum barst svo erindi frá íbúum Aragötu og Oddagötu en í haust var lögð á gjaldskylda í götunum. Íbúar voru ekki sátt við þessa tilhagan. Ástæða gjaldskyldunnar er fyrirséð leitun háskólafólks í gjaldfrjáls bílastæði eftir að Háskóli Íslands hefur gjaldtöku fyrir bílastæði háskólans. Til stóð að háskólinn hefði gjaldtökuna í haust en það hefur tafist þar til a.m.k. áramóta.
Íbúar kvarta einnig undan samskiptum við borgina en ekki var vilji fyrir því að seinka framkvæmdum þótt svo talningar íbúa og frestun gjaldtöku HÍ bentu til að engin þörf væri að setja gjaldskylduna á strax. Eins vekur það nokkra undran að misræmi er á milli talninga borgarinnar og íbúa, og að borgin kaus að setja á gjaldskyldu P2 sem nær einnig yfir helgar þótt engar talningar um helgi hafi legið fyrir og HÍ mun aðeins beita gjaldskyldu milli 8-16 sem samsvarar þá gjaldskyldu P4.
Rætt var að halda mögulega sérstaka fókusaða fundi um ákveðin mál.