Þriðjusvæði

Þriðjusvæði (e. third place) eru formleg og óformleg almenningsrými utan heimilis og vinnu (sem stundum er vísað til sem fyrstu- og önnur-svæðin). Þriðjusvæði geta verið almenningsgarðar en einnig kaffihús, bókasöfn, vistgata, eða hver sá staður sem við komum saman á.

Vesturbærinn er lifandi hverfi og eitt þess sem glæðir hann lífi eru þessi rými þar sem leiðir okkar skarast. Melabúðin, Vesturbæjarlaugin og Kaffi Vest mynda kjarna sem dregur að sér fleira fólk. Ægisíðan á björtum degi er pökkuð fólki að drekka í sig nærandi sólarljósið og nærveruna við sjóinn. Þetta eru lífsgæði sem ekki er bara vert að standa vörð um heldur eigum við gagngert að vinna að því að móta fleiri slík.

Ægisíðan

Ægisíðan er ein helsta náttúruperla Vesturbæjarins. Hana þarf að vernda en þó þannig að hún nýtist íbúum. Aðgengi að sjónum er verðmætt en til stendur að koma upp fótalaug við grásleppuskúrana við Grímsstaðavör.

Sjórinn sjálfur er hins vegar vannýtt útivistarsvæði en auk sjósundsins hefur aukist að fólk leggi út frá Ægissíðunni á kajökum og standbrettum. Þar eru mörg sóknarfærin.

Borgarhlutakjarninn við Hofsvallagötu

Svæðið við Hofsvallagötuna um miðja vegu milli Hringbrautar og Ægisíðu einkennist af Vesturbæjarlaug, Melabúðinni og svo Kaffihúsi Vesturbæjar og Brauð & Co. Þetta er fjölbreytt svæði með verslanir, veitingar, og útivistarsvæði með leiktækjum.

Háskóli Íslands er með aðstöðu í Haga og húsinu þar fyrir sunnan, Neshaga 16. Húsnæðismál HÍ eru þó í nokkrum breytingum með uppbyggingu Nýs Landsspítala og flutningi Upplýsingatæknisviðs úr Neshaga í Sögu. Það er því full ástæða til að Hofsvallagatan geti orðið enn líflegra svæði á næstu árum.

Landakotstún

Landakotstúnið er í eigu Landakotskirkju en svæðið nýta nágrannar í hverfinu til útivistar og þar stendur til að byggja upp leiksvæði með battavelli.

Önnur verðmæt þriðjusvæði

  • Hólavallagarður
  • Eiðsgrandi
  • JL húsið
  • Fiskislóð
  • Háskólasvæðið
Scroll to Top