Áherslur Vesturbæinga 2026

Í kjölfar kosninga til sveitarstjórna sendi stjórn Íbúasamtakanna út könnun í umræðuhópi samtakanna á Facebook um hvaða málefni Vesturbæingar vildu sjá lagða áherslu á. Þátttaka var ágæt en alls merktu 616 aðilar við eitt eða fleiri atriði.

Eftir sameiningu atriða sem tengsast í gegnum áveðið þema voru niðurstöðurnar eftirfarandi:

Niðurstöðurnar koma svosum ekki á óvart enda umferðaröryggi iðulega efst á forganglistum sem þessum. Þar sem kannanir á Facebook eru ekki nafnlausar gafst hins vegar einnig tækifæri til að greina hvort Vesturbæingar mynduðu hópa eða klasa í kringum ákveðin málefni, og þá hvort ákveðin málefni væru tengd í gegnum áhuga íbúa.

Með því að krossgreina atkvæðin fékkst þá þessi samantekt:

Úr greinaritinu (e. dendrogram) vinstra megin við málefnaheitin má sjá hvaða málefni deila stórum hluta kjósenda. Það er ekkert algilt hvernig hópana skuli móta því málefnin deila meira og minna einhverjum íbúum sem þau kusu.

Ein leið til að flokkka þetta er með því að setja ákveðið efra mark á hversu ólíkir hóparnir mega vera og þá fáum við þessa þrjá klasa auk nokkurra málefna sem hafa sér ólíkari kjósendahóp. Miðað við efra markið á myndinni fáum við þrjá klasa málefna:

Stærstur er það sem við mættum nefna „mjúka borgin“. Þetta eru atriði eins og umferðaröryggi, græn svæði, almenningssamgöngur og innviðir fyrir virka ferðamáta (þetta er sá dökk-guli á myndinni).

Næst stærstur er nokkuð sem við gætum nefnt „þjónustuborgin“ en þau atriði snú að þeirri þjónustu sem íbúar vilja njóta; aðallega frá borginni en einnig fyrirtækjum.

Svo er eilítið minni hópur sem setur skóla-, leikskóla- og leikvallamál á oddinn. Önnur atriði eiga sér bæði færra stuðningsfólks og minna sameiginlegt með öðrum atriðum.

Annað áhugavert er að sjá í gögnunum að Vesturbæingar eru annars almennt sammála. Engin málefni virðst vera sérlega umdeild og töluverð skörun er á milli atriða. Vesturbæingar nálgast málefnin því frekar sem „já, og…“ en „annað hvort eða“.

Ítarlegri yfirferð

Stjórn hafði lagt upp með nokkur atriði:

  • Umferðaröryggi gangandi og hjólandi (hámarkshraði og þveranir)
  • Gjaldskylda bílastæða (íbúakort, gjald og samráð)
  • Umferð í gegnum hverfið (sbr. Hringbraut og Hofsvallagata)
  • Gangstéttir og -stígar
  • Hjólastígar (uppbygging og viðhald)
  • Almenningssamgöngur
  • Hverfisásýnd við uppbyggingu í grónu hverfi (t.d. við Vesturbugt og Birkimel)
  • Grandinn og hafnarsvæðið
  • Græn svæði og útivist
  • Strandlengjan og sjávartenging
  • Skóla- og leikskólamál
  • Þjónusta við eldri íbúa
  • Þrif, viðhald og ásýnd hverfisins
  • Vetrarþjónusta
  • Atvinnulíf og þjónusta í hverfinu
  • Samráð við íbúa og íbúalýðræði

Listinn var opinn fyrir öðrum tillögum um málefni og bættust eftirfarandi valkostir við:

  • Íþróttaaðstaða KR
  • Leikvellir (uppbygging og viðhald)
  • Strætó milli Granda og 107
  • Banna hringsól kennsluflugvéla yfir Vesturbænum
  • Strætisvagnatenging úr Skerjafirðinum inn í 107
  • Koma fyrir fleiri öruggum gönguleiðum yfir Suðurgötu og draga þar enn ur hraðaakstri. Fæstir sem virða 40 km hámarkshraða m. a. strætó!
  • Tónskólinn Doremi – bætt aðstaða skólans og stækkun svo fleiri nemendur komist að
  • Almennilegan brettagarð og ærslabelg nær gamla vesturbæ
  • Banna nýbyggingar við Holtsgötu/Brekkustíg og Öldugötu/Dafarstíg
  • Vernd grænu svæðanna
  • Setja upp öruggar leiðir fyrir börn að þvera Hringbrautina – helst undirgöng svo þau komist á hjóli
  • Burt með flugvöllinn!

Niðurstöðurnar má sjá hér að neðan:

Þátttakendum voru ekki gefin nein ráð eða tilmæli um fjölda atkvæða. Stjórn vildi fá sem víðasta svörun en ef margir kysu bara allt sem þeim þætti áhugavert (frekar en þau málefni sem þua vildu leggja sérstaka áherslu á) væri lítið gagn úr niðurstöðunum að hafa. Vesturbæingar virtust átta sig á þessu eða fylgja því eðlislægt og flestir þátttakendur kusu eitt til fimm atriði.

Atriðin í langa listanum hér að ofan eru hins vegar nokkuð mörg og deila sum hver þemum. Sem dæmi eru atriði eins og óskir eftir ákveðnum Strætóleiðum og Almenningssamgöngur almennt, ýmis atriði tengd grænum svæðum og útivist, eða ónæði af flugvellinum. Eftir að nokkur slík sambærileg atriði hafa verið sameinuð fæst öllu meðfærilegri listi. Röðin breyttist þó ekki að ráði enda flest sértæku atriðana með fá atkvæði á bakvið sig. Sameinaður listi er þá eftirfarandi:

Deila má um hversu skynsamlegt þetta sé. Í þeim tilfellum sem svo til sami hópur kýs tvö málefni vegna þess að þau eru svo til sama málefnið er hentugara að sameina þau í eitt. Eins ef ólíkir hópar velja tvö atriði vegna þess að þau snúa að tveimur ólíkum svæðum (t.a.m. strætóleiðir milli kjarna Vesturbæjar og annars vegar Skerjafjarðar, og hins vegar Granda; þær falla báðar undir almenningssamgöngur en hverfa ef þau eru ekki talin saman).

Hér að neðan má sjá hversu mörg kusu hvert nokkurra atriða sem sameinuð voru. Gráa súlan segir hversu mörg atkvæðin voru samtals (með þar sem atkvæði frá einstaklingi sem kýs tvö málefni telur tvisvar) en sú dökkbláa er fjöldi einstakra aðila kusu eitt eða fleiri málefni undir sameinaða þemanu.

Ef síðustu tvær súlurnar eru misstórar voru kjósendur flestir að kjósa bæði atriðin (eins og sjá má í tilfelli almenningssamgangna og strætóleiðanna; dökkbláa súlan lækkar þegar tvítalningin er tekin út). Ef þær eru svipað stórar er um afar ólíka kjósendur að ræða (líkt og í tilfelli atvinnulífs og þjónustu, og Doremi), eða einn hópur mun stærri en hinir (líkt og í tilfelli umferðaröryggis gangadi og hjólandi, og atriðum um öruggar gönguleiðir).

Við greiningu á þeim þröskuldi sem hentaði best til a flokka klasana var sá valinn sem skilaði nokkuð svipuðum þemum í klösunum. Hér að neðan má sjá nokkra aðra þröskulda:

Einnig voru skoðuð hitakort fyrir Jaccard-firð og lyftu (e. lyft), en þau voru aðeins notuð til hliðsjónar við greinaritið við flokkun atriðanna út frá klösunum.

Scroll to Top