Stjórn Íbúasamtaka Vesturbæjar starfsveturinn 2025-26

Aðalfundur íbúasamtakanna var haldinn 10. september 2025 á Slippbarnum. Til fundar mættu um 12 íbúar. Á fundinum var skýrsla stjórnar lögð fram og umræður spunnust í kringum hana.

Rætt var um orsakir þess að íbúaráðin voru lögð niður en þau höfðu ekki verið að nýtast sem skyldi og æskilegt að eitthvað gagnlegt komi úr þeirri vinnu sem borgin er að vinna að íbúasamráði.

Fundargestir ræddu samktiptaleiðir íbúa en samfélagmiðlar eru ekki endilega bestu vettvangarnir til þess að miðla upplýsingum. Póstlistar kunni að vera betri.

Helstu mál sem hafa verið í umræðunni undanfarið eru Vesturbugt, Birkimelur, samgöngur, hjólaleiðir, og græn svæði. Efla þurfi útisvæði og möguleika til útiveru. Uppbygging við KR hefur einnig verið deiglunni sem og bílastæðamál.

Skýrsla stjórnar var samþykkt einróma.

Engar lagabreytinartillögur voru lagðar til en ný stjórn kosin. Hana skipa:

  • Martin Jónas B. Swift, formaður
  • Ásta Olga Magnúsdóttir
  • Kristín Huld Sigurðardóttir
  • Örn Þór Halldórsson
Scroll to Top