Hofsvallagata

Hofsvallagatan er ein af megingötum Vesturbæjarins. Hún liggur í gegnum borgarhlutakjarnann við Sundlaugina og er ein af aðalgötum hverfisins skv. Aðalskipulagi Reykavíkur, AR2040.

Kaplaskjólsvegur hafði fyrir verið helsta tenging byggðarinnar innan Hringbrautar vestur í Skjólin og svo eftir Nesvegi út á Seltjarnarnes. Um miðbik síðustu aldar er skipulag ört vaxandi borgar í mótun og gert ráð fyrir að Hofsvallagatan teygi sig vestur nokkurnveginn samsíða Kaplaskjólsvegi út að Ægisíðu. Á korti frá 1947 sést hvernig Hofsvallagatan skuli koma en þá var í vegi fyrir henni Kamp Knox, einn þekktasti kampurinn í sögu borgarinnar en þar var aðsetur bandaríska sjóhersins [Ferlir].

Kampurinn var rifinn á árunum fyrir 1965 og Hofsvallagatan þá loks lögð [Vesturbæjarblaðið]. Af loftmyndum að dæma tók hún við stórum hluta umferðar inn á Hagana og á áttunda áratugnum er lokað fyrir umferð bíla af Hringbraut inn á Kaplaskjólsveg.

Hofsvallagata ber með sér að vera skipulögð á eftirstríðsárunum. Breitt vegstæðið og gert ráð fyrir veglegum gatnamótum við Nesveg (þar sem nú eru T-gatnamót við Neshaga).

Endurhönnun Hofsvallagötu

Í október 2011 stóð Hverfisráð Vesturbæjar fyrir fjölmennum íbúafundi um endurhönnun Hofsvallagötu. Í tilkynningu kom fram að einhugur hafi verið meðal fundarmanna að umferðin um götuna væri of hröð, ógni öryggi gangandi vegfarenda, geri götuna óvistlegri og rýri lífsgæði í hverfinu þar sem hún sker skóla- og tómstundahverfi í sundur [Vísir].

Í gang fór umtalsverð vinna við endurhönnun Hofsvallagötu og sumarið 2013 var hafist handa við það sem átti að verða fyrsti fasinn í framkvæmdunum. Háværar óánægjuraddir urðu til þess að einhverjar framkvæmdanna voru teknar aftur. Í kjölfarið stóð Umhverfis- og skipulagssvið fyrir vinnufundi um endurgerð Hofsvallagötu [Reykavíkurborg, 19. mars 2014]. Fundinum var stjórnað af KPMG sem skilaði skýrslu um fundinn en niðustöðurnar skyldu liggja til hliðsjónar við endurhönnun Hofsvallagötu sunnan Hringbrautar. Samkvæmt framkvæmdaáætlun borgarinnar var þá gert ráð fyrir 150 milljónum í endurgerð götunnar [Reykjavíkurborg, 23. apríl 2014].

Drög að endurhönnun göturýmis Hofsvallagötu voru kynnt í Umhverfis- og skipulagsráði 19. febrúar, 2. júlí, og 15. október árið 2014. Málið hafði verknúmerið US140036.

Engin hönnun hefur verið kynnt íbúum.

Staða Hofsvallagötu

Á undanförnum árum hefur Hofsvallagata fengið afar takmarkað viðhald. Hlutar hennar hafa verið malbikaðir og þverun við Sundlaug Vesturbæjar var gerð í kjölfar Betri Reykajvík/Hverfið mitt með flágum og síðar að frumkvæði borgarinnar þar sem þverun í plani við gangstéttir með góðri lýsingu var gerð.

Gagnstéttir hafa hins vegar ekki fenigð neitt viðhald þrátt fyrir mikla þörf og hjólreiðastígurinn sem átti aðeins að vera til bráðabirgða hefur aldrei staðið sómasamlega undir nafni.

Vinna að frumkvæði Íbúasamtaka Vesturbæjar

Ástand Hofsvallagötu berst reglulega í tal en ekkert hefur frést af vinnu við umbætur á henni af hálfu Reykjavíkurborgar. Haustið 2025 blésu Íbúasamtökin til fundar til að ræða málefni Hofsvallagötunnar en ýmis áhugaverð sjónarmið komu þar fram. Gatan er öllum Vesturbæingum mikilvæg og áríðandi að hún komist í endurgerð sem fyrst.

Ítarefni

Yfirlit yfir fundargerðir þar sem verknúmer endurhönnunar Hofsvallagötu kemur fyrir.

Borgargötur – Endurhönnun á borgargötum í þéttri byggð og við hverfiskjarna -Leiðbeiningar Reykjavíkurborgar með útskýringum á skipulagsheimildum hverfisskipulags fyrir borgargötur og helstu áherslur við endurhönnun þeirra. Uppfært 2019.09.12.

Borgargata – hlutverk og flokkun – Bakkalárverkefni Vilborgar Þórisdóttur frá árinu 2017 sem snertir á borgargötum eins og Hofsvallagötu og greinir hana ásamt Hverfisgötu, Borgartúni og Grensásvegi.

Skýrsla KPMG með niðurstöðum vinnufundar Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar með íbúum Vesturbæjar, mars 2014.

Samantekt af íbúafundi Íbúasamtaka Vesturbæjar um málefni Hofsvallagötu sem haldinn var 3. september 2026.

Fréttir frá ýmsum miðlum

Engin grenndarkynning – Frétt frá 1. ágúst 2013 á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda með myndum á framkvæmdatíma.

Umferðarmerkingar gætu skapað vegfarendum hættu. 13. ágúst 2013 19:36. Kjartan Hreinn Njálsson. Vísir.

Hofsvallagötu breytt í samræmi við nýtt aðalskipulag – Frétt frá 19. febrúar 2014 á vef Reykjavíkurborgar um að endurhönnun á Hofsvallagötu milli Hringbrautar og Ægisíðu sé í burðarliðnum og staða breytinga hafi verið kynnt fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur.

Vinnufundur með íbúum um Hofsvallagötu – Frétt frá 14. mars 2014 á vef Reykjavíkurborgar um komandi vinnu- og samráðsfund með íbúum um endurhönnun Hofsvallagötu.

Niðurstöður íbúafundar um endurhönnun Hofsvallagötu – Frétt frá 23. apríl 2014 á vef Reykjavíkurborgar um skýrslu KPMG.

Scroll to Top