Íbúafundur Íbúasamtaka Vesturbæjar haldinn á Kaffihúsi Vesturbæjar miðvikudaginn 3. september 2025 til að ræða málefni Hofsvallagötunnar. Gestir skiptu sér í tvo hópa sem fjölluðu að mestu um sitt hvorn hluta Hofsvallagötunnar, sunnan og norðan Hringbrautar.
Umræðunni til stuðnings voru útprentuð kort og hálfgegnsæ blöð til að máta lausnir við.


Atriði sem komu fram, raðað frá suðri til norðurs
Sleppa framhjáhlaupi syðst á Hofsvallagötu. Almennt var fólk sammála því að framhjáhlaupið hvetti til hraðaksturs og gerði aðgengið yfir að Ægisíðunni verra. Það er erfitt að útfæra þetta því beygjan af Hofsvallagötu til vesturs á Ægisíðu er kröpp og strætisvagnar ná henni illa. Ýmsar útfærslur voru ræddar tengdar gatnamótunum. Til dæmis mætti gera framhjáhlaupið aðeins fyrir almenningsvagna, gera gatnamótin öll að “vistgötu” þannig að vagninn geti tekið víða beygju, og viðbót beygjuakreinar.

Gatnamót Hofsvallagötu og Neshaga. Enginn fundargesta var ánægður með þessi gatnamót. Það var ekki farið djúpt í að ræða útfærslur en mikill áhugi á að þetta yrði lagað.
Hagi og Neshagi 16. Þessi hús hafa verið í eigu og notkun Háskóla Íslands. Reykjavíkurborg er víst búin að fá Neshagann en ekki ljóst hvað hann verður notaður í. Hagi verður líklega í notkun HÍ þar til starfsemin flyst austur á Landspítalalóðina. Mikill áhugi var fyrir því að nýta þessi rými til að byggja upp hverfiskjarnann, m.a. fyrir samfélagsþjónustu.
Götuhlutinn frá Neshaga að Melabúð. Þessi hluti var nýlega gerður að 30-götu. Fram kom sú hugmynd að gera hann að vistgötu.
Hofsvallagata við Sundlaug Vesturbæjar. Hugmyndir um „stubbagarð“, m.a. fyrir börn sem bíða eftir rútunni. Einnig að breyta högun rútustæðisins við Hagavagninn til að bæta öryggi eða færa, en rúturnar þurfa núna oft að bakka vegna rafmagnshleðslustöðvanna.
Gangstétt Hofsvallagötu við Melana. Gangstéttin er afar illa farin og löngu kominn tími á að laga hana. Eðlilegt að gera það með endurhönnun götunnar allrar, en það er bara ekki hægt að láta það bíða lengur.
Gatnamót Hringbrautar og Hofsvallagötu. Þessi gatnamót eru áskorun vegna þess að um þau fara ansi mörg og erfitt að koma öllum ferðamátum fyrir. Sum vilja bæta hjólaakreinarnar en önnur einnig koma beygjuakrein aftur fyrir. Göturýmið spannar aðeins 18 m og því þarf að skoða hvort koma megi því fyrir.
Innkeyrslur við Ásvallagötu 28, Sólvallagötu 22, og Hávallagötu 33. Bent var á að þær væru þröngar og breidd götunnar ekki nægileg fyrir tré.
Gatnamót Hofsvallagötu og Túngötu. Þessi gatnamót þóttu hættuleg fyrir krakkana í Landakotsskóla og óskir komu fram um að þau yrðu á einhvern hátt löguð.

