Öryggi í hverfinu er flestum hugleikið enda mikilvægt að vera laus við ótta og afleiðingar slysa. Alvarlegustu slysin eru af völdum árekstra bíla og því vert að gefa því gaum hvar umferð bíla þverar aðra umferð og hvernig draga megi úr líkum á slysum og alvarleika þeirra.
Hraði
Hraði er helsta ástæða slysa og sá þáttur sem ákvarðar einna helst hve alvarleg slysin geta orðið. Með því að draga úr hraða drögum við verulega úr orku mögulegs áreksturs og líkum á honum með því að auka viðbragðstímann sem ökumaður getur brugðist við.
Götuhönnun
Víða eru götur hannaðar fyrir mikinn hraða og innviðir fyrir gangandi eru settir skör neðar en innviðir fyrir akandi. Þverandir fyrir gangandi í plani við gangstéttir bæta ekki aðeins aðgengi ganandi og hjólandi heldur gefa þau ökumönnum til kynna að þeir geti búist við því að óvarðir vegfarendur eigi þar leið um.

Útlit
Tengt hönnun gatna er útlit þeirra. Bandarískt framtak, Asphalt Art Initiative, birti skýrslu árið 2022 sem sýndi að götulistaverk gerðu götur umtaslvert öruggari fyrir gangandi vegfarendur.

Sýnileiki
Í skammdeginu er mikilvægt að vera sérstaklega á varðbergi fyrir lítt sýnilegum vegfarendum. Ökumenn þurfa að gefa aukinn gaum, hjólandi eiga að nota ljós að framan og aftan og mikið gagn er af því að koma endurskinsmerkjum fyrir á fatnaði gangandi.
Góð reynsla er af aukinni lýsingu þar sem slík hefur verið sett upp við þveranir, t.d. nærri skólum.
Minni umferð bíla
Rólegri umferð er ekki aðeins öruggari heldur gerir hún umhverfið mannvænna og hvetur fleiri til að nota virka ferðamáta. Mörg börn geta gengið til skóla en því færri bílar sem aka nærri skólum, því minni líkur á slysum. Þau sem búa fjær skólum mættu hugleiða að skila börnum sínum til skóla spölkorn frá skólanum til að draga úr umferð nærri skólanum.
Ítarefni
- Umferðaröryggisáætlun Reykjavíkur 2019-2023, Skýrsla unnin fyrir Reykjavík og birt í júní 2020
- Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga – Mat á ávinningi, Vegagerðin apríl 2020
- Asphalt Art Initiative, verkefni á vegum Bloomberg Philanthropies sem miðar að því að stuðla að fjölgun sjónrænna inngripa í almennings-samgöngurýmum. Þau hafa m.a. gefið út leiðbeiningar og umferðaröryggisskýrslu, og styrkja verkefni um allan heim.