Kæru grannar, Íbúasamtök Vesturbæjar hafa verið með vefsíðuna vesturbaerinn.wordpress.com í nokkur ár en það hefur staðið henni fyrir þrifum að ekki er hægt að stilla henni upp hvernig sem er og mögulega hafa birst þar einhverjar auglýsingar inni á síðunni sem Íbúasamtökin hafa enga stjórn á. Því var það metið svo að tími væri kominn á að koma vefnum á nýjan stað.
Fyrir valinu varð lénið vesturbæingar.is (eða vesturbaeingar.is) og við vonumst til að hér á þessum stað verði vefurinn enn aðgengilegri og gagnlegri.